Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í borgarstjórn síðastliðin átta ár, verður sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit í komandi sveitarstjórnarkosningum.Þórdís Lóa Þórhallsdóttir.FaxaflóahafnirÞórdís Lóa tilkynnti í haust að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram í borginni. Viðreisn, með Þórdísi í broddi fylkingar, var í meirihluta í borgarstjórn 2018 til 2022 og aftur eftir kosningarnar 2022 þar til slitnaði upp úr meirihlutasamstarfi í febrúar í fyrra.Í færslu á Facebook segir Þórdís að hún eigi rætur í Þingeyjarsveit. Mikil tækifæri séu til að efla atvinnulíf, styðja við fjölskyldur og skapa enn betri aðstæður til að búa og starfa.