„Ég er svo þakklátur að hafa hitt hann þarna. Það hefði verið mjög erfitt að fyrirgefa sér að hafa ekki farið,“ segir íþróttafréttamaðurinn og skemmtikrafturinn Andri Már Eggertsson. Andri skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum, heiðrar landsmenn oft með nærveru sinni á skjánum á íþróttaleikjum og hefur verið hvað þekktastur fyrir viðurnefnið Nablinn. Hann ræddi við blaðamann um líf sitt og tilveru, vonir og drauma, lífsgleðina og mikla sorg sem hann gekk í gegnum fyrir rúmum tveimur árum síðan.