Niðurstöður úr fyrri umferð forsetakosninga í Perú sem haldnar voru síðasta sunnudag verða kunngerðar um miðjan maí samkvæmt upplýsingum æðsta úrskurðarvalds landsins í kosningamálum.Þegar um 94 prósent atkvæða hafa verið talin leiðir sú hægrisinnaða Keiko Fujimori með sautján af hundraði. Hún er dóttir Albertos Fujimori sem var forseti Perú frá 1994-2000. Hann var dæmdur til 25 ára fangavistar fyrir glæpi gegn mannkyni, og lést 2024.Í seinni umferð þarf að kjósa milli tveggja efstu og vandkvæðin liggja í því að mjög mjótt er á munum með vinstrimanninum Roberto Sanchez og íhaldsmanninum Rafael Lopez Aliaga sem báðir hafa fengið um tólf prósent atkvæða.Aðeins munar um 13.600 atkvæðum á þeim tveimur. Báðir hafa báðir gagnrýnt tafirnar og sagt rannsóknar þörf. Aliaga hvatti stuðningsfólk sitt