Á hverju ári fara um 70 þúsund skip til og frá Eystrasalti um Eyrarsund og Stórabelti, það er tæplega 200 skip á hverjum einasta degi. Þessu til viðbótar kemur svo fjöldi smábáta af ýmsu tagi og þá eru ótaldar skútur og trillur sem dóla á góðviðrisdögum, einkum á Eyrarsundi. Fleiri stærri skip fara um Stórabelti en Eyrarsund, skýringin er sú...