Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kjörstaðir opnaðir fyrir áttundu þingkosningarnar á fimm árum

Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Búlgaríu þar sem landsmenn ganga að kjörborðinu í áttunda sinn á fimm árum. Skoðanakannanir benda til þess að miðvinstribandalag flokka undir forystu Rumen Radev, fyrrverandi forseta landsins, fái um 35 prósent atkvæða. Hann stefnir að hreinum meirihluta og hefur heitið að taka af festu á landlægri spillingu í landinu, óstöðugleika og því fámennisstjórnarfari sem þar hefur ríkt. Radev sagði af sér forsetaembætti í janúar eftir að ríkisstjórn Rosens Zeljazkovs féll í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í desember þar sem afsagnar hennar var krafist. Fram að því hafði stjórnin staðið af sér fimm vantrauststillögur á þinginu. Radev hefur verið gagnrýninn á hernaðarstuðning Búlgaríu og Evrópusambandsins við Úkraínu og hefur talað fyrir að efla tengslin við Rússland.
Kjörstaðir opnaðir fyrir áttundu þingkosningarnar á fimm árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta