Engan sakaði þegar lítilli einkaflugvél hvolfdi í lendingu við Tungubakka í Mosfellsbæ um klukkan sex síðdegis í gær. Dælubíll slökkviliðsins var sent á vettvang.RÚV / Ragnar VisageVísir greinir frá þessu og hefur eftir Ásgeiri Halldórssyni, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, að sjúkrabíll og einn dælubíll hafi verið sendir á staðinn. Slökkviliðsmenn liðsinntu við að koma vélinni aftur á hjólin en ekki er vitað hversu mikið hún skemmdist við óhappið.