Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bíll sprakk í loft upp þannig að ómaði um alla Malmö

Bíll sprakk í loft upp í Hindby-hverfinu í sænsku borginni Malmö laust eftir klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Sænskur lögreglubíll. Mynd úr safni.SVT / BlåljusbilderSprengingin var svo hávær að hún heyrðist um nær alla borgina að sögn fréttamiðilsins Sydsvenskan. Enginn eldur fylgdi sprengingunni. Einn hefur verið handtekinn, sem að sögn sjónarvotta var með uppsteit við lögreglu. Enginn slasaðist við sprenginguna en talsverðar skemmdir urðu á nærliggjandi húsum, gluggarúður brotnuðu og gat kom á húsvegg. Bílar skemmdust einnig þegar brak féll á þá. Lögregla hefur lokað svæðið af meðan sprengjusérfræðingar athafna sig.
Bíll sprakk í loft upp þannig að ómaði um alla Malmö

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta