Konungsfjölskyldan breska hefur fengið sagnfræðinginn Önnu Keay til að rita opinbera ævisögu Elísabetar II drottningar sem lést í september 2022 eftir meira en sjötíu ára valdatíð.Karl III konungur hefur ætíð viljað að kona skrifaði endanlega og óyggjandi sögu móður hans, að sögn breskra fjölmiðla. Hirðin segir í yfirlýsingu að Keay fái fullan aðgang að öllum skjölum Elísabetar, jafnt opinberum sem persónulegum, sem varðveitt eru í Konungsskjalasafninu.Hún fái einnig að ræða við alla konungsfjölskylduna, vini drottningar og starfsfólk. Keay lýsir Elísabetu sem einstakri konu sem lifði öld mikilla umbreytinga. Hún segir konunginn og fjölskylduna alla sýna sér mikinn heiður með því að leita til hennar.„Ég er hans hátign afar þakklát fyrir að trúa mér fyrir þessu ábyrgðarmikla verki,“ segir A