Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Heppinn kaupandi nældi sér í björgunarvesti af Titanic fyrir jafnvirði 111 milljóna króna

Björgunarvesti af farþegaskipinu Titanic seldist nýverið á uppboði í Wiltshire á Bretlandi fyrir 670 þúsund sterlingspund eða jafnvirði tæplega 111 milljóna íslenskra króna. Ekkert björgunarvesti af Titanic hefur áður verið selt á uppboði á þeim 114 árum sem liðin eru frá því það fórst í jómfrúrferð sinni.Þarna myndaðist því einstakt tækifæri fyrir kaupandann segir uppboðshaldarinn Andrew Aldridge, hjá Henry Aldridge & Son, í samtali við BBC. Hann kveðst himinlifandi yfir viðskiptunum, sem endurspegli þann mikla áhuga sem fólk hafi á örlögum Titanic, farþega þess og áhafnar.Bandaríska konan Laura Mabel Francatelli, sem ferðaðist á fyrsta farrými, setti á sig vestið áður en hún steig um borð í björgunarbát og varð þannig ein þeirra 700 sem lifðu sjóslysið af. VERÐIÐ MUN HÆRRA EN BÚIST VAR
Heppinn kaupandi nældi sér í björgunarvesti af Titanic fyrir jafnvirði 111 milljóna króna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta