Félagar í þrettán björgunar- og hjálparsveitum á Suðurlandi fagna þessa dagana því sveitirnar voru að fá tuttugu milljóna króna gjöf frá fjórum stúkum í Oddfellowreglunni á Selfossi. Peningarnir verða nýttir til tækjakaupa.Gjafaafhending fór fram í Oddfellow-húsinu við Vallholt á Selfossi síðdegis í gær en hlutverk Oddfellow-reglunnar er meðal annars að stunda góðgerðarstarf og styrkja samfélagið og það sannaðist svo sannarlega með 20 milljóna króna gjöfinni frá stúkunum á Selfossi. 13 sveitir fengu styrki, mismikið en allur peningurinn fer til tækjakaupa.En hvað kemur til að Oddfellow ákvað að styrkja sveitirnar svona myndarlega?„Þetta er svæðið okkar og samræmist því sem við erum að gera og þetta er bara ánægjulegur dagur og í okkar hjarta að geta lagt gott af mörkum,” segir Sigurður Gun