Unnið er að því að breikka og styrkja vegi vegna flutninga á efnivið í vindmyllur fyrir Vaðölduvirkjun. Sums staðar þarf að fjarlægja skilti og ljósastaura, svo að flutningabílarnir komist leiðar sinnar.Styrkja þarf vegi og breikka beygjur svo að hægt sé að flytja efnivið fyrir fyrstu vindmylluvirkjun Íslands í Vaðöldu. Framkvæmdirnar eru á kostnað Landsvirkjunar.Mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í hér á landi hefjast í næsta mánuði þegar Landsvirkjun flytur vindmyllur frá Þorlákshöfn upp í Vaðöldu, þar sem fyrsta vindmylluvirkjunin á Íslandi rís. Unnið er að því að breikka og styrkja vegi svo að flutningabílarnir komist leiðar sinnar.„Hér eru verktakar á vegum Landsvirkjunar að breikka fyrir það fyrsta vegamótin til þess að þessi löngu farartæki, sem munu fara hér um til að fly