Síðustu misseri hafa öll fangelsi landsins, bæði lokuð öryggisfangelsi sem og opin, verið yfirfull. 718 manns bíða þess að taka út sína refsingu – og þar af er um helmingur sem bíður þess að komast í afplánun í fangelsi. Þeir sem eftir standa eru annaðhvort farnir úr landi eða hefur verið brottvísað – eða bíða þess að hefja samfélagsþjónustu. FANGELSUM GERT AÐ NÝTA ALLA LAUSA KLEFA OG EKKI UNNT AÐ VERÐA VIÐ GÆSLUVARÐHALDSBEIÐNUM Fangelsum er gert að nýta alla lausa klefa og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum er sleppt úr haldi lögreglu eða þeir þurfa að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður. Fangaverðir segja fangel