Strax í gærmorgun var búið að flagga hinsegin fánum um allan bæ, að sögn Hornfirðingsins Guðrúnar Óskar Gunnarsdóttur. Hún brást við ummælum Snorra Mássonar um regnbogafána í færslu sem hefur farið víða um Facebook. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Miðflokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn.