Venesúelski stjórnarandstæðingurinn Maria Corina Machado segist alls ekki sjá eftir því að hafa gefið Donald Trump Bandaríkjaforseta friðarverðlaun Nóbels, sem hún var heiðruð með í fyrra.Machado segir Trump hafa hætt lífi þegna sinna í þágu frelsis Venesúela með hernaðaraðgerð þar sem Nicolas Maduro forseti landsins var handtekinn. Hann er í haldi í Bandaríkjunum vegna gruns um fíkniefnabrot.Trump hefur verið tíðrætt um að vilja vera heiðraður friðarverðlaunum Nóbels. Hann hefur stært sig að því að hafa stuðlað að lokum þónokkurra átaka víða um heim. Stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hefur staðið í rúman mánuð og vopnahlé á að renna út á miðvikudag.Machado afhenti Trump verðlaunagripinn í janúar og Nóbelsnefndin sagði í kjölfarið að verðlaunin sjálf væru ekki framseljanleg. Machad