Maðurinn sem varð fimm að bana í skotárás í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í dag var 58 ára karlmaður fæddur í Moskvu, höfuðborg Rússlands. Þetta segja úkraínskir saksóknarar. Hann særði tíu til viðbótar og tók fjóra í gíslingu.Úkraínskir miðlar herma að maðurinn hafi skotið fólk í miklu návígi í íbúðarhverfi. Hann hafi svo farið inn í stórmarkað þar sem skothríðin hélt áfram. Hann tók fólk sem var inni í versluninni í gíslingu. Einn gíslanna var drepinn og yfirvöld segja fjórum hafa verið bjargað.Lögreglumenn felldu árásarmanninn. Igor Klymenko innanríkisráðherra sagði lögreglu hafa reynt að sannfæra hann um að leggja niður vopn. Hann hafi verið felldur um 40 mínútum eftir að lögregla reyndi fyrst að fá hann til að gefa sig fram.Nánari upplýsingar um hver árásarmaðurinn var liggja ekki fyrir og