Líbönsk stjórnvöld fordæma árás á friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í landinu í dag, þar sem franskur hermaður var drepinn og þrír særðir. Þau heita ítarlegri rannsókn og að árásarmönnunum verði refsað. Þetta sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti eftir að hafa rætt við forseta og forsætisráðherra Líbanon.Særðu friðargæsluliðarnir voru fluttir til aðhlynningar. Tveir þeirra eru sagðir þungt haldnir.Macron sagði fyrstu vísbendingar gefa til kynna að Hezbollah-samtökin hefðu ráðist á friðargæsluliðana. Samtökin vísa þeim ásökunum á bug.Forseti líbanska þingsins, sem er hliðhollur Hezbollah, hefur einnig fordæmt árásina.UNIFIL, friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, segir að skotið hafi verið á fólkið meðan það vann að sprengjuleit. UNIFIL ætlar einnig að rannsaka árásina og segir að