Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, kynnti kosningaáherslur framboðsins við opnun kosningamiðstöðvar í miðborginni í dag. Áherslurnar bera yfirskriftina Nýjar áherslur – sama markmið: Borg fyrir fólk.Í samtali við fréttastofu að fundinum loknum sagði Pétur baráttuna nú formlega hafna og kvaðst spenntur fyrir mánuðinum fram undan. > Það er mjög gaman að hitta fólk og hlusta á það sem brennur á borgarbúum og það er ótrúlega gaman að heyra hvað borgarbúar eru ánægðir með hverfin sín og í rauninni með borgina. En öll benda þau á að það sé kominn tími á breytingar og ég held að við séum að svara kallinu. Ég er náttúrulega nýr í þessu en mér finnst þetta rosalega gaman og þau gefa mér orku, hópurinn minn í Samfylkingunni. VILJA EINFALDA LEYFISVEITINGAR Helstu áherslur framboðsins e