Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ræddu samgöngur á Vesturlandi og sjávarútveg

Vikulokin voru send út frá Borgarnesi í dag. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræddi þar við Arnheiði Hjörleifsdóttur, bónda á Bjarteyjarsandi og ferðaþjónustufrömuð, Guðmund Smára Guðmundsson, framkvæmdastjóra hjá Guðmundi Runólfssyni og stjórnarformann Fiskmarkaðs Íslands, og Steinþór Loga Arnarsson, sauðfjárbónda og formann Samtaka ungra bænda.Til umræðu voru meðal annars samgöngur á landi og sjó, ekki síst ástand vega á Vesturlandi, sameiningarmál á Vesturlandi, stórframkvæmdir og skipulagsmál í litlum sveitarfélögum og sjávarútvegsmál. Spurður um hvað þyrfti helst að gera í sjávarútvegi sagði Guðmundur Smári að það lægi mest á að leggja meira fé í hafrannsóknir.
Ræddu samgöngur á Vesturlandi og sjávarútveg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta