Maður hóf skothríð í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, síðdegis í dag. Fimm voru skotnir til bana og tíu til viðbótar eru særðir og hafa verið fluttir á sjúkrahús, segir Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti í færslu á samfélagsmiðlinum X.Árásarmaðurinn hafi verið felldur og fjórum gíslum bjargað.Ekki liggur fyrir hver árásarmaðurinn var og tilefni árásarinnar er óljóst. Zelensky sagðist eiga von á skjótri rannsókn. Hann sagðist hafa beint því til innanríkisráðherra Úkraínu og yfirmanns ríkislögreglunnar að birta ætti opinberlega allar staðfestar upplýsingar um rannsóknina.Fréttin hefur verið uppfærð.