Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, kynnti áherslur flokksins við opnun kosningamiðstöðvar Samfylkingarinnar í Reykjavík í dag. Á meðal áherslna flokksins er fjölgun leikskólaplássa og að standa við þá samninga sem borgin hefur gert við ríki og nágrannasveitarfélög í samgöngumálum.