Tryggja þarf að trúnaðarmenn stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu geti tjáð sig án ótta, segja formenn, stjórnar- og trúnaðarmenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu. Tólf þeirra standa fyrir skoðanagrein á Vísi þar sem þeir segja að standa þurfi vörð um umboð fulltrúa fag- og stéttarfélaga í trúnaðarhlutverkum.Ragnari Frey Ingvarssyni lækni var sagt upp störfum hjá Landspítalanum í liðinni viku, þar sem hann gegndi hlutastarfi. Landspítalinn sagði það vera vegna ríkrar aðhaldskröfu. Ragnar er formaður Læknafélags Reykjavíkur og telur félagið að með uppsögninni sé brotið gegn félagsmönnum þess.Í aðsendu greininni segja formenn fag- og stéttarfélaga að gagnrýni, fagleg ábending og opin umræða séu ekki ástæða til refsinga heldur forsenda umbóta.„Félagsfólk velur sér fulltrúa til að ta