Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá

Þrjár björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi í gær vegna slasaðs manns í gjótu. Talsverðan mannskap þurfti til að hífa manninn upp og koma honum undir læknishendur.Björgunarsveitirnar Ingunn á Laugarvatni, Tintron í Grímsnesi og Björgunarfélag Árborgar voru kallaðar út rétt um klukkan átta í gærkvöld vegna manns sem féll í Davíðsgjá sem er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni. Auk sveitanna var sjúkraflutningalið frá Selfossi og lögregla kölluð út.Hópur fólks hafði verið við sund í gjánni þegar einn lenti í gjótu og slasaðist nokkuð á fæti með talsverðum blæðingum.Ljóst var frá upphafi að nokkur vinna yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll kæmist og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni.
Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta