Kolbeinn Rastrick skrifar:Project Hail Mary hefur farið sigurför um heiminn og hagnaður hennar á opnunarhelginni varð sá mesti í sögu MGM-kvikmyndaversins. Myndin er byggð á samnefndri vísindaskáldsögu rithöfundarins Andy Weir sem skrifaði einnig bókina The Martian sem varð að kvikmynd árið 2021. MGM keypti réttinn að sögunni árið 2020, ári áður en bókin kom út, og var þá þegar búið að ákveða að Ryan Gosling myndi leika aðalhlutverkið. Leikstjórarnir Phil Lord og Christopher Miller sem hafa unnið ítrekað saman voru ráðnir til þess að leikstýra sama ár en þeir eru hvað þekktastir fyrir að hafa leikstýrt og skrifað teiknimyndina Skýjað með kjötbollum á köflum og Lego-myndina. Drew Goddard sem aðlagaði bókina The Martian að hvíta tjaldinu var svo fenginn til að gera það sama við Project Hail