Fjölskyldu- og skemmtiþátturinn Góðir Íslendingar hefur fengið frábærar viðtökur síðustu vikur og fram að þessu höfum við séð góða gesti ásamt þáttastjórnendum rýna í stóru málin sem snerta hve mest land og þjóð í hita og þunga dagsins. Þannig hafa málefni eins og stjórnmál, veðrið og Eurovision söngkeppnin verið krufin til mergjar. Hildur Vala Baldursdóttir leikkona er með styrka hönd á stýri og hefur hún hingað til notið aðstoðar Sóla Hólm, Friðriks Dórs, Völu Kristínar Eiríksdóttur og Halldóru Geirharðsdóttur meðal annarra.Nú eru það íþróttirnar sem verða skotspónn rýnenda þáttarins og til þess að aðstoða Hildi Völu mæta þau Anna Svava Knútsdóttir og Mikael Kaaber sem eru auðvitað annálað íþróttafólk en einnig vinsælir leikarar. Varamannabekkurinn er einnig þéttsetinn og öflugur því þau