„Við Íslendingar eigum engan annan kost en að skrifa inn á við. Okkur þýðir ekkert að vera að dunda við einhvern alheimsprósa. Það er bara að ganga af tungunni. Í samfélagi þjóðanna verðum við að ástunda íslenzka list með íslenzkum rótum, og reyna að gera hana að hluta af heimslistinni. Ef okkur tekst ekki með þessum hætti að bæta spönn við litteratúrinn, þá eigum við að láta skriftir vera.“