Íslenskur sjávarútvegur er í brennidepli í nýrri grein danska dagblaðsins Berlingske og er honum lýst af heimildarmönnum þess sem „nútíma fámennisstjórn“. Hann er sagður vera byggður á „fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“.Blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn, meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem ræddu við Olsen.Í greininni segir að sjávarútvegur hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs Íslands en að hann sé einnig að „éta upp lýðræði landsins að innan“, eins og það er orðað í greininni. Sjávarútvegurinn sé byggður á ótta, stjórn og pólitískum áhrifum.Kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan sjávarútvegsins hafi