Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan, hertogaynjan af Sussex, hafa lokið fjögurra daga ferðalagi sínu um Sydney og Melbourne í Ástralíu. Þar næst heldur Harry einn áfram til Canberra.Ferðin hefur verið umdeild líkt og margt sem hjónin hafa tekið sér fyrir hendur eftir að þau sögðu sig frá konunglegum skyldum sínum. Ferðin var ekki opinber heimsókn heldur eins konar kynningarferð og voru hjónin aðalræðumenn á stórum – og dýrum – ráðstefnum auk þess sem þau heimsóttu barnaspítala, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, stríðsminnisvarða og fóru í göngutúr með frumbyggjum.Parið fór síðast til Ástralíu í níu daga opinbera heimsókn skömmu eftir að þau giftu sig árið 2018. 300 ÞÚSUND FYRIR VIP-MIÐA Hjónin hafa sætt gagnrýni fyrir þátttöku sína á ráðstefnunum og hafa gagnrýnendur þeirra