Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar loka enn fyrir Hormússund

Íranski herinn hefur aftur sett í lás á Hormússundi, degi eftir að opnað var fyrir skipaumferð um þessa mikilvægu siglingaleið milli Persaflóa og Ómansflóa. Í tilkynningu í morgun sögðust Íranar munu hafa strangt eftirlit með umferð um sundið þar sem Bandaríkin hefðu gengið á bak orða sinna og haldið höfnum landsins í herkví.Ekki yrði opnað fyrir umferð um sundið að fullu fyrr en Bandaríkjaher hleypti skipum til og frá Íran. VART OPIÐ Í SÓLARHRING Íranar féllust á að opna fyrir óhefta skipaumferð um Hormússund í gær, á meðan vopnahlé milli Írans og Ísraels og Bandaríkjanna stæði, en það á að renna út á miðvikudaginn næstkomandi.Þetta voru góðar fréttir fyrir hagkerfi heimsins, enda fer um fimmtungur af allri heimsframleiðslu olíu þar um, og olíuverð lækkaði skarpt í kjölfar yfirlýsingar
Íranar loka enn fyrir Hormússund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta