Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Helsingi í Reykjavík

Fremur sjaldséður gestur suðvestanlands sást við Starhaga í Reykjavík á miðvikudag þar sem hann beit gras af áfergju og sötraði vatn úr pollum.Þarna var á ferðinni helsingi, gæs sem sést vanalegast að vori til í þúsundatali á Suðaustur- og Norðvesturlandi, í Húnavatnssýslum og Skagafirði en er fátíð á suðvesturhorninu. Helsinginn vappaði þarna um suðurströnd Reykjavíkur innan um hóp grágæsa að því er Sólrún Harðardóttir greinir frá á vefnum Náttúra Reykjavíkur.Sólrún fagnaði því sérstaklega að hafa myndavél meðferðis til að geta sannað fund sinn. Hún segir helsingja vera umferðarfarfugla sem haldi sig á Bretlandseyjum að vetrarlagi en haldi flestir til Grænlands á sumrin og komi við hérlendis til að safna orku.Þegar helsinginn heldur til baka á haustin dreifir hann sér meira um sunnanvert
Helsingi í Reykjavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta