Ásdís Birna Bjarkadóttir var tólf ára þegar faðir hennar var dæmdur í átta ára fangelsi. Málið var áberandi í fjölmiðlum en heima fyrir ríkti þögn. Nú, sextán árum síðar, hefur hún skrifað bókina Þegar pabbi fór í fangelsi, bók sem hún skrifaði til „litlu Ásdísar“, til að svara þeim spurningum sem hún hefði sjálf viljað fá svör við á sínum tíma.