Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Frystir allvíða í kvöld

Úrkomubakki liggur yfir Austurlandi og má búast við norðvestan kalda eða strekkingi þar í dag og rigningu eða slyddu með köflum. Vestanlands er von á hægviðri og þar verður bjart að mestu. Seinnipartinn dregur úr vindi og styttir upp fyrir austan. Hiti verður á bilinu 3 til 10 stig í dag en frystir allvíða í kvöld.Á morgun beina lægð á Grænlandshafi og hæð við austurströndina suðaustlægri átt til landsins, kalda eða strekkingi og smáskúrum suðvestan- og vestantil. Á Norður- og Austurlandi verður hægari vindur og nokkuð bjart.Eftir helgi er von á fremur hægri suðlægri átt með úrkomulitlu og mildu veðri.RÚV / Ragnar Visage
Frystir allvíða í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta