Á fjórða þúsund leiðtogar af vinstri væng stjórnmálanna, hvaðanæva að úr heiminum, hittast í spænsku borginni Barcelóna í dag og ræða viðbrögð við þeirri ógn sem lýðræðinu kann að stafa af uppgangi öfgahægriafla og valdboðshyggju.Ráðstefnan ber yfirskriftina „Fundur til varnar lýðræðinu“. Spánski forsætisráðherrann Pedro Sanchez stjórnar ráðstefnunni ásamt Luiz Inacio Lula da Silva Brasilíuforseta. Þeir hafa báðir verið afar gagnrýnir á stjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þótt Lula segi ráðstefnunni ekki sérstaklega beint gegn honum.ins vegar verði að sporna fótum af alefli við öllu bakslagi lýðræðisins. Báðir segja ætlunina vera að finna leiðir til að styrkja lýðræðisferli í heiminum og sameina framfarasinnuð öfl. Evrópskir leiðtogar lengst til hægri halda fund í Mílanó í dag.Um það b