Samkomulag náðist í morgun um að Japanir afhendi Áströlum fyrstu hátæknivæddu freigátuna af um það bil tíu sem smíðaðar verða á næsta áratug.Pat Conroy er ráðherra hernaðaruppbyggingar í Ástralíu.EPA / WILLY KURNIAWAN / POOLÞannig rúmlega tvöfaldast stórherskipafloti Ástralíu, fer úr ellefu í 26 skip. Japanska fyrirtækið Mitsubishi Heavy Industries smíðar freigáturnar sem verða þungvopnaðar og þeirrar náttúru að nær útilokað verður að greina þær á ratsjám.Japanir hafa varla gert stærri samning um hergagnasmíði frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Japönsk stjórnvöld hafa stóraukið varnarsamvinnu við önnur ríki á Kyrrahafssvæðinu vegna aukinnar útþenslu Kínverja.