Íbúum Evrópusambandsríkjanna fækkar um tæp tólf af hundraði fyrir aldarlok og þeir eldast nokkuð, samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Eurostat, evrópsku hagstofunnar. Það þýðir að 53 milljónum færri munu búa í ríkjunum árið 2100 en núna, eða rétt tæpar 400 milljónir.Til samanburðar eru Bandaríkjamenn tæpar 343 milljónir og fólksfjöldinn nemur um 8,3 milljörðum í heiminum öllum. Samkvæmt áætlun stofnunarinnar bjuggu tæpar 452 milljónir í Evrópusambandinu á síðasta ári.Nokkuð hægði á fólksfjölgun á tímum kórónuveirufaraldursins en það snerist fljótt við aftur. Til skamms tíma er talið að áfram verði hæg fólksfjölgun til ársins 2029 og að þá taki samdráttur við.Það sem eftir lifir öldinni er búist við að hlutfall barna, ungs fólks og fólks á vinnualdri af heildarmannfjöldanum dragist talsvert saman