Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandarískum kaþólikkum þykir Trump hafa gengið of langt í aðfinnslum við Leó páfa

Mörgum bandarískum kaþólikkum þykir Donald Trump forseti hafa gengið allt of langt í gagnrýni á Leó páfa XIV.Trump hefur með fordæmalausum hætti atyrt páfa vegna viðhorfa hans allt frá innflytjendamálum til stríðs Bandaríkjanna gegn Íran, kallað hann veiklundaðan gagnvart glæpum og vankunnandi í heimsmálunum.Forsetar Bandaríkjanna hafa gætt þess að ergja ekki kaþólikka enda fjölmennir meðal kjósenda. Trump naut meirihlutastuðnings meðal þeirra í kosningunum 2024. Opinberar orðasennur hans við páfa gætu að mati greinenda haft áhrif á fylgi Repúblikana í þingkosningunum í nóvember.Leó er fyrsti Bandaríkjamaðurinn á Páfastóli og hefur sagt það skyldu sína að andæfa stríði og ofbeldi. Hótanir Trumps um gereyðingu sex þúsund ára gamallar siðmenningar í Íran hefðu verið gersamlega óásættanlegar.
Bandarískum kaþólikkum þykir Trump hafa gengið of langt í aðfinnslum við Leó páfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta