Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íranar hóta lokun Hormússunds að nýju linni herkví Bandaríkjanna ekki

Forseti íranska þingsins hótar að Hormússundi verði lokað haldi Bandaríkjamenn herkví um sundið til streitu. Öll för um sundið væri háð leyfi íranskra stjórnvalda.Mohammad Bagher Ghalibaf lýsti þessu yfir í færslu á samfélagsmiðlinum X og bætti við að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði í kvöld á einni klukkustund borið sjö fullyrðingar á borð, sem allar hefðu verið ósannar. Ghalibaf sagði Bandaríkin ná langt í samningaviðræðum með slíku athæfi. Hann tíundaði það ekki frekar.Trump sagði í kvöld að Bandaríkin linntu herkvínni um leið og samkomulag næðist við Írani. Hann kvaðst jafnframt bjartsýnn á áframhaldandi samningaviðræður við Íran um helgina, þegar hefði mjakast nokkuð í samkomulagsátt og í raun bæri lítið í milli.CNN hefur eftir ónafngreindum írönskum embættismönnum að viðræður hal
Íranar hóta lokun Hormússunds að nýju linni herkví Bandaríkjanna ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta