Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

MR hafði betur gegn Kvennó í úrslitum Morfís

MR er sigurvegari Morfís, eða Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, árið 2026. Keppnin var haldin í Háskólabíói.Arnar Kjartansson oddadómari kynnir úrslit kvöldsins.SkjáskotAndstæðingurinn var Kvennaskólinn í Reykjavík og rökræðurnar snerust um gervigreind, kosti hennar og galla. Þetta er í ellefta sinn sem MR sigrar í keppninni á þeim rúmu fjörutíu árum sem hún hefur verið haldin. Oddadómarinn Arnar Kjartansson tilkynnti úrslitin og boðaði að þetta væri síðasti sinn sem hann gegndi því embætti. Honum var vel fagnað og ekki síður ræðumanni kvöldsins, hinni 16 ára Bergþóru Hildi sem hlaut 981 stig.
MR hafði betur gegn Kvennó í úrslitum Morfís

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta