Tónleikum bandaríska rapparans Kanye West eða Ye sem átti að halda í Póllandi í júní hefur verið aflýst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum tónleikanna í landinu.Tónlistarmaðurinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir hatursfulla orðræðu í garð gyðinga og hefur hann sjálfur sagst vera nasisti. Í febrúar á síðasta ári hóf West sölu á stuttermabolum með hakakrossi en verslunarsíðan Shopify tók vefverslun hans niður stuttu seinna. West gaf einnig út lagið Heil Hitler í fyrra en í texta lagsins lofar hann þýska nasistaleiðtogann.Marta Cienkowska, menningarráðherra Póllands, sagði áður óásættanlegt að hann fengi að halda tónleika í landinu í ljósi ummæla sinna. WIRELESS DRAUMURINN ÚTI Bresk stjórnvöld hafa þegar bannað tónlistarmanninum Kanye West að koma til landsins. West á