Sjávarútvegsstjóri ESB, Costas Kadis, fundaði með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra í dag. Kadis sagðist vera meðvitaður um að sjávarútvegsmálin væru Íslendingum mikilvæg og að mörg dæmi séu um að tekið sé sérstakt tillit til ríkja sem sækja um aðild að sambandinu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir hins vegar að þótt tekið sé tillit til sérkenna einstakra umsóknarríkja sækist Ísland eftir öðrum kostum, meðal annars verulegum undanþágum frá sambandslöggjöf ESB og varanlegri undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB. Hún segir engin fordæmi fyrir því að slíkar undanþágur hafi verið veittar.„Sérkenni þjóða eru ekki um það deilt en varanlegar undanþágur eru allt annað.“Heiðrún segir að takmarkanir á aðkomu erlendra fjárf