Stjórnvöld hafa sofnað á verðinum í forvörnum gegn fíkniefnum, segir Árni Einarsson uppeldis- og menntunarfræðingur.Árni stofnaði Fræðslumiðstöð í fíkniefnum árið 1993 og er nú framkvæmdastjóri Fræðslu og forvarna, félags áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu.Í Kveik var fjallað um sprengingu á innflutningi á kókaíni sem varð í fyrra. Metmagn af fíkniefnum er í umferð. MÁ ALDREI GEFA FORVÖRNUM SLAKA Forvarnir eru langtímaverkefni og það má aldrei gefa þeim slaka, að mati Árna.„Í fyrsta lagi þá þurfum við að hafa það í huga að allt sem við getum kallað forvarnir og snýr að þeim, þetta er viðvarandi verkefni. Þetta er ekki eitthvað sem við getum hlaupið í bara þegar eitthvað bjátar og hlutirnir fara að síga á verri hlið.“Árni segir mikilvægt, í forvörnum, að fá almenna þátttöku og sams