Síðustu vikur hefur Herjólfur þurft að sigla frá Þorlákshöfn þar sem ekki hefur verið hægt að sigla frá Landeyjahöfn. Ferðin er lengri og einungis hægt að sigla tvisvar til þrisvar sinnum á dag.Rannsóknir á jarðlögum í Vestmannaeyjum hefjast um helgina, til að kanna hvort raunhæft sé að gera göng milli lands og Eyja. „Þau myndu vera 18 kílómetra löng og ef þú ert að keyra á 70 km hraða þá ertu 15 mínútur að keyra yfir,“ segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga. „Fyrir utan frelsið sem fylgir því að geta farið hvenær sem þú vilt.“„Ég er mjög spennt fyrir göngunum,“ segir Helen Kjartansdóttir, íbúi í Eyjum. Friðfinnur Finnbogason, Eyjamaður, er ekki bjartsýnn á að sjá þau verða að veruleika. Það taki of langan tíma. „Ég hugsa að ég lifi það ekki af,“ segir Friðfinnur.