Þátttakendur í námskeiði Iðunnar hafa síðustu daga unnið hörðum höndum að því að breyta fjallajeppa af gerðinni Land Rover Defender 110, árgerð 2007, í rafmagnsbíl. Til þess var notast við upprunalega íhluti úr Nissan Leaf af árgerð 2023.Námskeiðið er haldið í samstarfi við fyrirtækið Electric Classic cars og Ísak 4x4 Rental og var markmið þess að bíllinn yrði aksturshæfur að lokum.Þeir sem tóku þátt í námskeiðinu eru að mestu leyti bifvélavirkjar en einnig þeir sem hafa áhuga á jeppaferðum og rafmagni.„Þetta sameinar svo marga hópa,“ segir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðan fræðisetri.„Við erum með jeppa, eldri bíl og rafmagnið þannig að þetta sameinar mjög breiðan hóp og þetta verkefni má hugsa þannig að koma fólki saman og ræða málin. Hvort þetta virki, sérstaklega