Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Full umferð ekki komin í Hormússund þrátt fyrir opnun

Ýmsar gleðifréttir hafa borist af Hormússundi í dag. Íranar segjast hafa opnað sundið að fullu, Donald Trump segir að Íranar ætli aldrei að loka því aftur og þjóðarleiðtogar hafa samþykkt að taka þátt í fjölþjóðlegri aðgerð um opnun sundsins strax og skilyrði leyfa.En það er ekki þar með sagt að allt sé í himnalagi og umferð um þetta mikilvæga sund sé komin á sama stað og hún var áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn hófu loftárásir sínar á Íran í lok febrúar. Fleiri hindranir eru þar í veginum. NÝ SIGLINGALEIÐ OG SKIPAFÉLÖG TREG Abbas Araghchi utanríkisráðherra Ísraels sagði í tilkynningu á X í dag að nú væri sundið opið fyrir öll flutningskip meðan á vopnahléinu stæði. Vopnahléið í Íran á að renna út 22. apríl. Markaðir glöddust við þetta, enda fer um 20% af allri olíu heimsins um sundið.
Full umferð ekki komin í Hormússund þrátt fyrir opnun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta