Hvort eru viðræður við ESB aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður? Þessari spurningu er varpað fram á Vísindavefnum og henni svarar Margrét Einarsdóttir prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.Margrét segir ekki þörf á neinni aðlögun til að uppfylla svonefnd grunnskilyrði Evrópusambandsins í tilviki Íslands og því ekki tilefni til að kalla viðræðurnar annað en aðildarviðræður.Í tilvikum kommúnistaríkja sem höfðu hug á að ganga í ESB eftir fall kommúnismans hafi sagan aftur á móti verið önnur. Fyrrum kommúnistaríki hafi þurft að ráðast í talsverða aðlögun í undirbúningi umsókna sinna og því segir Margrét ef til vill réttnefni að kalla aðildarviðræður þeirra aðlögunarviðræður.Íslenskt samfélag grundvallist nú þegar á sömu gildum og ESB, svo sem lýðræði, vernd mannréttinda og virku marka