Kjarnabor kom til Vestmannaeyja í gær og rannsóknarboranir hefjast um helgina. Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga, segir það gert til þess að eyða óvissu um fýsileika jarðganga til Eyja.Kjarnaborunin fer þannig fram að sýni eru tekin úr jarðlögum og samlíming bergs, þéttni og lekt skoðuð. „Þetta er síðan metið til að búa til kostnaðarmat fyrir jarðgöngin,“ segir Haraldur.Kostnaðurinn við borun í Heimaey og á Landeyjasandi er í kringum 200 milljónir og að sögn Haralds er fjármagnið sótt til sveitarfélaga í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi auk fyrirtækja um allt land. Nú sé lokaspretturinn á fjármögnuninni.„Síðan erum við að fara í hljóð- og endurvarpsmælingar og þá erum við að skoða hversu sterkt bergið er á hafsbotni,“ segir hann. MYNDI BREYTA ÖLLU AÐ FÁ GÖNG Haraldur segir að þ