Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lögðu hald á rúm 30 kíló amfetamíns í tveimur ferðatöskum

Tvennt var handtekið eftir að tollgæslan á Keflavíkurflugvelli fann rúm þrjátíu kíló af amfetamíni í farangri þeirra á sunnudaginn. Fólkið hefur verið í haldi síðan.Heimild til gæsluvarðhalds rennur út á morgun, en í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að krafist verði framlengingar gæsluvarðhalds.Rannsókn er á frumstigi og lögreglan verst frekari frétta að svo stöddu.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er fólkið breskir ríkisborgarar með sögu hjá lögregluyfirvöldum ytra og talið fullvíst að það sé ekki skipuleggjendur smyglsins. Kílóin þrjátíu voru í tveimur ferðatöskum, í mörgum plastpakkningum ofan í poka, en ekki hafði verið gerð tilraun til að fela þau sérstaklega. Þetta er mesta magn amfetamíns sem fundist hefur á Keflavíkurflugvelli.Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögðu hald á rúm 30 kíló amfetamíns í tveimur ferðatöskum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta