„Þetta verða raunverulegar samningaviðræður“, segir Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins um mögulegar aðildarviðræður Íslands að sambandinu. Málefni hafsins voru meginefni samráðsfundar hans og Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra í dag.Tilgangur fundarins var að styrkja aukið og víðtækara samstarf milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu, svo sem sjálfbærar fiskveiðar, vísindarannsóknir og verndun hafsins. Það er í samræmi við viljayfirlýsingu milli Íslands og ESB sem var undirrituð í júlí en þar er einnig stefnt að auknu samstarfi við verndun líffræðilegs fjölbreytileika og orkuskipta í sjávarútvegi og fiskeldi. ENGAR TVÆR AÐILDARVIÐRÆÐUR EINS Á blaðamannafundi að fundinum loknum sagði Kadis sér þykja mikið til íslenskrar sérþekkingar og frumkvöðlastarfs