Hart var tekist á um hvort rekstur Kópavogsbæjar væri sjálfbær eða ekki á fundi bæjarráðs á fimmtudag og gengu bókanir á víxl á fundinum. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lagði fram ársreikning Kópavogsbæjar fyrir síðasta ár og sagði jafnframt að árin 2024 og 2025 væru tvö bestu rekstrarár Kópavogs í 18 ár. Rekstrarniðurstaðan var jákvæð um 4,6 milljarða króna. Minnihlutinn bókar...