Fjórir nemendur í Borgarholtsskóla hófu nýverið sölu á leiknum Flatir Fletir með það að markmiði að fá fleiri ungmenni til að verja tíma saman úti í sumar. Þeim þykir sorglegt að sumarleikir virðist vera að víkja fyrir inniveru og símanotkun. Þeir hafi viljað fanga þá „sígildu tilfinningu að standa úti á íslenskri fjöru á sumrin og fleyta kerlingar, skemmtun sem verður aldrei þreytt“.