Bjarni Hannesson yfirvallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar hefur í mörg horn að líta. Nú er völlurinn einkar viðkvæmur því undir yfirborðinu sem er að bráðna er frost og þá verður grasið eins og búðingur. Bjarni varar við því að fólk sé að flækjast á vellinum nú um stundir.